Græn framtíð

Græn framtíð ehf. sérhæfir í endurnýtingu á raftækjum.

Markmiðið með starfseminni er að draga úr því magni rafeindabúnaðar sem endar á sorphaugum landsins og stuðla að endurnýtingu á slíkum búnaði í gegnum samstarfsaðila.

Við tökum við farsímum, fartölvum, MP3 spilurum, leikjavélum, netlyklum, stafrænum myndavélum og stafrænum upptökuvélum.

Láttu ekki þitt eftir liggja og leyfðu þínu raftæki að eiga framhaldslíf. Hvort sem það er gamli farsíminn í skúffinni þinni, ónýta fartölvan í geymslunni eða jafnvel brotni MP3 spilarinn sem átti að lenda í ruslinu.

Allir þessir hlutir eru endurnýtanlegir. Það er synd að þurfa að henda þegar hægt er að endurnýta.